Top 10 similar words or synonyms for völlum

rangárvöllum    0.912753

hvammi    0.910360

vesturhópi    0.906963

breiðabólstað    0.906915

upsum    0.903977

glaumbæ    0.900560

haukadal    0.899735

víðivöllum    0.893223

blönduhlíð    0.892306

miðfirði    0.889833

Top 30 analogous words or synonyms for völlum

Article Example
Ketilsstaðir á Völlum Páll Melsteð sýslumaður í Norður-Múlasýslu settist að á Ketilsstöðum 1821 og keypti jörðina. Bústýra hans þar fyrsta árið var Skáld-Rósa Guðmundsdóttir. Páll lét reisa mikið timburhús á Ketilsstöðum og var það fyrsta timburhús sem reist var á sveitabæ á Héraði.
Ketilsstaðir á Völlum Bessi Guðmundsson sýslumaður bjó á Ketilsstöðum frá 1712 og bjó þar til dauðadags 1723 og síðan Jórunn ekkja hans áfram í 30 ár. Árið 1747 flutti Pétur Þorsteinsson sýslumaður að Ketilsstöðum og bjó þar stórbúi til dauðadags 1795. Á meðal barna hans var Sigurður Pétursson sýslumaður og leikritaskáld.
Ketilsstaðir á Völlum Ketilsstaðir er bær á Völlum á Fljótsdalshéraði, gamalt stórbýli og löngum talin ein mesta og besta bújörð á Héraði. Þar sátu ýmsir höfðingjar fyrr á öldum, þar á meðal margir sýslumenn Norðmýlinga.
Ketilsstaðir á Völlum Ketilsstaðir eru landnámsjörð og bjó þar landnámsmaðurinn Ásröður, sem fékk með Ásvöru Herjólfsdóttur konu sinni allt land austan Lagarfljóts, milli Gilsár og Eyvindarár. Margir nafnkunnir menn voru á meðal afkomenda þeirra og hafa einhverjir þeirra vafalaust búið á Ketilsstöðum en bærinn kemur þó ekki við Íslendingasögur og er ekki getið fyrr en á dögum Páls Þorvarðarsonar sýslumanns á Eiðum (d. 1403) en hann átti Ketilsstaði. Þegar Ingibjörg dóttir hans giftist Lofti ríka Guttormssyni mun hún hafa fengið Ketilsstaði í heimanmund og var jörðin lengi í eigu afkomenda þeirra.
Ketilsstaðir á Völlum Marteinn Gamlason, sýslumaður í Norður-Múlasýslu um 1440, mun hafa búið á Ketilsstöðum og síðan Bjarni sonur hans, sem kallaður var Hákarla-Bjarni. Árið 1465 giftist hann Ragnhildi, dóttur Þorvarðar sonar Lofts ríka. Hann eignaðist þó ekki Ketilsstaði með henni, heldur Eiða, og fluttu þau þangað, en Ingibjörg systir Ragnhildar, kona Páls Brandssonar sýslumanns Eyfirðinga, hefur líklega fengið Ketilsstaði í sinn erfðahlut. Erlendur sýslumaður, sonur Bjarna og Ragnhildar, bjó þar hins vegar fram á 16. öld og er sagt að enskir sjómenn hafi farið þar að honum og drepið hann. Bjarni sonur Erlendar bjó á Ketilsstöðum fram um 1570; hann var stórauðugur og þótti mikill fyrir sér.