Top 10 similar words or synonyms for thorcillius

baldvin    0.838760

erlendsson    0.837629

andrésson    0.837243

arason    0.830545

erlendur    0.826219

þorkelsson    0.823368

þorláksson    0.822720

hólabiskup    0.818069

snorrason    0.817289

skálholtsbiskup    0.812701

Top 30 analogous words or synonyms for thorcillius

Article Example
Jón Þorkelsson Thorcillius Minnisvarði um Jón, gerður af Ríkarði Jónssyni myndhöggvara, var reistur í Innri-Njarðvík 1965.
Jón Þorkelsson Thorcillius Jón settist að í Kaupmannahöfn og bjó þar til æviloka 1759. Hann var vel stæður en var ókvæntur og barnlaus og átti enga nána ættingja á lífi. Skömmu fyrir andlát sitt gerði hann erfðaskrá þar sem kveðið var á um að allar eigur hans skyldu renna til stofnunar skóla þar sem fátækustu börn í Kjalarnesþingi hlytu kristilegt uppeldi með húsnæði, klæðum og fæði uns þau gætu unnið fyrir sér sjálf. Ekki varð af því strax en stofnaður var sjóður, Thorcilli-sjóðurinn (eða "Thorkelli-sjóðurinn"), og árið 1792 var loks reistur barnaskóli á Hausastöðum á Álftanesi á kostnað sjóðsins og var það annar fyrsti barnaskóli á Íslandi. Allt fram á 20. öld fengu börn við barnaskóla Reykjavíkur styrk úr Thorkellisjóðnum til náms.
Jón Þorkelsson Thorcillius Jón Þorkelsson (1697 – 5. maí 1759), sem nefndi sig Thorcillius eða Thorchillius, var skólameistari í Skálholti á 18. öld, helsti menntafrömuður Íslendinga á sínum tíma og líklega fyrsti boðberi upplýsingarstefnunnar á Íslandi.
Jón Þorkelsson Thorcillius Jón var fæddur í Innri-Njarðvík í Vatnsleysustrandarhreppi, einkasonur Þorkels Jónssonar bónda og lögréttumanns þar og konu hans, Ljótunnar Sigurðardóttur. Hann nam við Skálholtsskóla og fór síðan í Kaupmannahafnarháskóla. Jón varð skólameistari í Skálholti 1728. Hann þótti strangur kennari en var vel að sér og mjög áhugasamur um bætta menntun. Hann var líka óánægður með aðbúnað og mataræði skólasveina og átti í útistöðum við Jón Árnason biskup, bæði um það og um kennslutilhögun.
Jón Þorkelsson Thorcillius Jón Thorcillius lagði meðal annars til að settur yrði á stofn sérstakur prestaskóli og þegar séra Jón Halldórsson í Hítardal lést haustið 1736 vildi Jón fá Hítardal og koma þar á prestaskóla. Ekki fékkst það samþykkt og sagði Jón þá af sér skólameistaraembætti og hélt til Kaupmannahafnar til að reyna að fá stjórnvöld til að gera umbætur í menntamálum Íslendinga. Hann taldi að kirkjustjórn á Íslandi væri betur borgið ef biskuparnir væru danskir eða norskir. Honum varð á endanum ágengt með erindi sitt og varð úr að Jón og danski presturinn Ludvig Harboe voru sendir til Íslands til að kanna fræðslumál og menntunarástand þjóðarinnar og gera tillögur um úrbætur.