Top 10 similar words or synonyms for sweet

speed    0.968700

too    0.967906

money    0.967865

loose    0.966717

sisters    0.966531

things    0.964607

murder    0.963752

these    0.963684

six    0.963626

heroes    0.963577

Top 30 analogous words or synonyms for sweet

Article Example
Sweet Life Sweet Life er lag á plötunni Channel Orange eftir Frank Ocean. Lagið er skrifað af Ocean og Pharrell Williams.
Sweet Taste of Liberty Sweet Taste of Liberty er þriðji þáttur 1. þáttaraðar bandarísku gamanþáttanna "How I Met Your Mother". Þátturinn var fyrst sýndur 3. október 2005. Næsti þáttur er „Return of the Shirt“.
Sweet Taste of Liberty Barney hefur ákveðið að það sé kominn tími til að Ted hætti að fara alltaf á sama barinn. Hann segir Ted að hann vilji gera eitthvað „sögulegt“ (e. „legendary“). Barney dregur Ted inn í leigubílinn sinn og segir honum að hann þurfi að sækja einhvern á flugvöllinn. Ted gerði sér ekki grein fyrir því að Barney væri að fara á JFK-flugvöllinn til að ná sér í stelpur. Barney segir Ted að þeir séu að leika alþjóðlega viðskiptamenn sem eru nýkomnir úr vel heppnaðri ferð til Japan. Barney ákveður síðan að þeir muni fljúga til Fíladelfíu, bara vegna þess að tvær fallegar konur eru líka að fara þangað. Barney hringir í Marshall (sem á að vera upptekinn við að læra lögfræði) til að koma líka til Fíladelfíu í Fieronum, vegna þess að þetta eigi eftir að vera „sögulegt“. Ted og Barney komast að lokum að því stelpurnar eiga kærasta sem spila fyrir Philadelphia Eagles. Ennfremur eru Ted og Barney handteknir af öryggisvörðum flugvallarins, þar sem þeir skildu farangurinn eftir á JFK-flugvellinum. Þeim er haldið þar í nokkra stund en er sleppt þegar það kemur í ljós að taska Barneys var full af smokkum og orkustöngum. Þeir fara síðan heim til Söschu (Sascha var öryggisvörðurinn á flugvellinum), en það er ekki mikið teiti þar (þrátt fyrir að Barney haldi því fram að það verði „sögulegt“), aðallega vegna þess að afi hennar er sofandi uppi. Barney — vegna þess að hann hitti öryggisvörð hjá Frelsisbjöllunni (e. Liberty Bell) — ákveður að það væri „sögulegt“ að sleikja Frelsisbjölluna. Ted neitar í fyrstu, en eftir að Barney segir Ted að hann sé besti vinur hans, samþykkir Ted það. Allan þennan tíma, hringja Barney og Ted í Marshall og segja honum annaðhvort að snúa við og fara heim vegna þess að það er ekkert spennandi að gerast, eða að koma vegna þess að þetta verður „sögulegt“.
Sweet Taste of Liberty Lily og Robin fara á barinn til að eiga stelpukvöld. Lily verður afbrýðissöm út í Robin, því hún er einhleyp, og það er ennþá reynt við hana og strákar kaupa drykki handa henni. Hún spyr Marshall hvort hún megi taka trúlofunarhringinn af og Marshall samþykkir það. Lily reynir þá að laða til sín stráka en það gengur ekki vel en henni tókst aðeins að fá samkynhneigðan mann til að segja henni að hún sæti á vínberi. Robin verður pirruð þegar Lily breytir hegðun sinni og sannfærir hana um að hún hafi það sem flestar einhleypar stúlkur dreymir um að eiga: góðan kærasta. Homminn býðst til að hjálpa henni að losna við vínbersblettinn og Marshall labbar inn um leið og hann er að hjálpa henni. Marshall, sem kom aðeins vegna þess að hann hafði áhyggjur af því að Lily hafði fjarlægt hringinn þetta kvöld, var tilbúinn að lemja gaurinn en faðmaði hann þegar hann komst að því að hann væri hommi. Þá kemur kærasti hans, líka afbrýðissamur, og slæst við Marshall.
Return of the Shirt „Return of the Shirt“ er fjórði þátturinn í 1. þáttaröð gamanþáttanna "How I Met Your Mother". Þátturinn var fyrst sýndur 10. október 2005. Þátturinn á undan var „Sweet Taste of Liberty“ — næstur er „Okay Awesome“.